Auglýsing

Nóvember 2009

27. nóvember 2009 klukkan 21:58
 



Setti inn nokkrar myndir af rúsínunum mínum hérna í myndaalbúmið...

Annars er bara allt gott að frétta, erum á fullu að innrétta hesthús í hlöðunni. Þetta verður ofsa kósý hesthús, fyrir 9 hesta, 7 einshesta stíur og 1 tveggjahesta. Við köllum þetta Villtra vestrið :)

Október

11. október 2009 klukkan 21:38

Myndir myndir... setti inn nokkrar myndir frá lífinu í sveitinni í oktbóber...

 

Rollur, rollur, rollur...

14. september 2009 klukkan 21:20
 Rakel Gígja rollukelling :)

Jæja þá eru allar göngur og réttir afstaðnar. Helgin fór í göngur á Vatnsnesfjallinu og svo var vigtað á sunnudeginum. Setti inn myndir á www.grafarkot.is af því, má sjá þær hér.

Komið haust

25. ágúst 2009 klukkan 13:39
Ef staðan er ekki bara þannig að haustið sé komið, vá hvað tíminn er fljótur að líða. Annars er ágúst búinn að vera fínn, frí í 2 vikur, íþróttamót, kvennareið, heyskapur, hestaferð, heimsókn í Skagafjörð. Hér að neðan eru nokkrar myndir úr kvennareið og tvær af Rökkvanum mínum.

 
Indriði Rökkvi dúllan mín á hestamóti í ágúst.                       Svo ánægður með nýju úlpuna sína :)


 Við Erla fórum í kvennareið í frægu gullkjólunum okkar.

 Félagi og Sæla fengu þann heiður að bera okkur í gullkjólunum alla leið.

 í ferðinni var líka glamour gellan Gréta

 og mín kæra systir Fanney

 við vorum margar, hátt í 100 fagrar konur á ferð.

Hér eru svo miklu fleiri myndir úr ferðinni.




Lindarberg

14. ágúst 2009 klukkan 18:35
 Fórum í skemmtilegan reiðtúr um landið fagra og tókum nokkrar myndir, þær má sjá með að haka á myndina hér að ofan af Lindarbergi.

Rakel Gígja á íþróttamóti Þyts

11. ágúst 2009 klukkan 21:52

 



Rakel Gígja keppti í pollaflokki á Íþróttamóti Þyts. Hér má sjá fleiri myndir af dömunni minni!!

Nenni aldrei að blogga

30. júlí 2009 klukkan 13:41
 Krúttin mín tvö í sumarbústaðnum í Húsafelli

 
Félagi og Kjalar sperrtir í upphafi hestaferðar               ...verið að ríða yfir Þingeyrasand

Alveg hætt að nenna að blogga. En sumarið er bara búið, langar bara að leggjast í dvala í nokkra mánuði. Vakna reyndar aðeins til að fara í kvennareiðina og göngurnar og svo bara vakna í jólin. Held ég sé að verða þunglynd á þessari veðráttu.

 Við Erla fyrir Skímó ballið

En hér eru myndir frá júlí , af Skímóballinu  og úr hestaferðinni.  

Ferðalagið

11. júní 2009 klukkan 15:02

Mamma afmæli

31. maí 2009 klukkan 21:01
 

Í gærkvöldi var rosa afmælisveisla í Óttuhöllinni en mamma varð fimmtug á föstudaginn sl. Þetta var geggjað stuð og setti ég inn fullt af myndum inn á myndasíðuna.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...