Auglýsing

Nýju græjurnar...

12. september 2007 klukkan 10:03
    Aldrei hélt ég að ég ætti eftir að vera spennt yfir því að kaupa mér nýja þvottavél. En mér leið í gær þegar ég fékk græjurnar eins og að ég væri að fá nýtt dót. Þetta var æði. Og svona líka flott dót. Ég get bara ekki beðið eftir að fara heim eftir vinnu í dag og þvoHlæjandi
  Emma með hrútana sína þá Emma og Króna

Annars var ég mest heima í gær, Rakel Gígja var með hita á mánudagskvöldið en var nú hitalaus í gær en við ákváðum að hafa hana heima. Síðan var smalað í gær og kom kindin hennar Rakelar hún Emma heim með hrútana sína tvo þá Emma og Króna. En Rakel hélt nú ekki að þetta væru þeir, ekki þessir hlunkar. Þeir voru bara pínulitlir þegar hún sá þá síðast. Og það var ómögulegt fyrir alla að reyna að útskýra fyrir henni að lömbin stækka á sumrin þegar þau fara upp í fjall með mæðrum sínum. Hún bíður því enn eftir þeim Emma og Króna enda eru þeir bara lítil lömb en ekki 50 kg hrútar.
Rakel er annars með munninn fyrir neðan nefið þessa dagana og það sem kemur upp úr henni getur verið alveg óborganlega fyndið, brot af því:

- við mæðgurnar vorum að labba yfir í  Grafarkot um helgina og þá kom Vala hlaupandi á móti okkur (einn af 4 hundum Grafarkots) og var voðalega elskuleg við Rakel. Rakel sagði strax við hana, ,,Vala þú mátt ekki koma í afmælið mitt" ég: ,,ha Rakel þú átt ekkert afmæli núna". Rakel: ,,nei hún má það samt ekki". Ég: ,,af hverju ertu að segja svona við hana, sagði einhver svona við þig?" Rakel: Já, Björgvin Glottandi Ég: ,,hann á heldur ekkert afmæli núna". (er víst að ganga á leikskólanum núna)
- Við Rakel vorum að lita í litabókina hennar í rólegheitum og þá segir litla daman við mömmu sína, ,,mamma þú ert kona", ég: ,,ok, en hvað ert þú" Rakel: ,,ég er prinsessa" ég: ,, ok en ekki ég?" Rakel: ,,jú jú en þú ert kona og prinsessa"
- Á leiðinni heim úr leikskólanum er kallað úr aftursætinu, ,,ég heiti ekki Rakel Runólfs" ég:  ,,nei ég veit það" Rakel: ,,ég heiti Rakel Gígja Ragnarsdóttir"
- Á leikskólanum getur verið erfitt þegar besti vinurinn er strákur. Fyrir nokkrum vikum sagði Rakel í óspurðum fréttum við mig að hún hefði ekki mátt vera með stelpunum í prinsessuleik. Ég: ,,af hverju ekki?" Rakel: ,,þær héldu að ég væri sjóræningi", ég: ,,nú af hverju héldu þær það?" Rakel: ,, af því að ég var það, en ekki lengur. Við Breki og allir vorum sjóræningar að skemma prinsessuleikinn" Ég: ,,Það má ekki skemma fyrir öðrum" Rakel: ,,en ég gerði það ekki lengur en mátti samt ekki fara í prinsessuleik" Ég: nei en þú verður að vera góð" Rakel: ,,Breki sagði að ég mætti bara vera risaeðla með honum"
 
Fanney
Hehehe... fyndnar sögur! Rakel er nú líka alveg dugleg að segja manni ýmislegt :)
Hlakka samt til þegar hún kemst yfir afhverju tímabilið :)
#1
12. september 2007 klukkan 16:44
púff... ég er ekki komin að ,,af hverju commentunum hennar" Heil Shrek mynd í síðustu viku ,,af hverju" ,,af hverju"
#2
12. september 2007 klukkan 21:10
 
Ína
óborganlegt......hhahhaha
#3
13. september 2007 klukkan 08:56
 
Eyrún
hahaha þessi elska .. fannst þetta eiginlega best með Emma og Króna :) algjör snilld, hún ætlaði greinilega ekki að samþykja þetta..
#4
14. september 2007 klukkan 15:09
 
Guðrún Ósk
Hún er nú meiri snúllan :) alveg óborganleg
#5
16. september 2007 klukkan 17:19

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...